Ótrúleg úrslit litu dagsins ljós í fyrstu viðureign Vals og KA í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í gærkvöldi þegar liðin mættust í Valshöllinni. Deildarmeistarar Vals höfðu mikla yfirburði í leiknum og unnu að lokum átján marka sigur, 39-21 eftir að hafa verið 17-9 yfir í hálfleik. Um er að ræða stærsta sigur í undanúrslitum frá því að úrslitakeppnin hóf göngu sína tímabilið 1991/1992. Engin úrslitakeppni fór fram á árunum 2005-2008 og þá fór engin úrslitakeppni fram tímabilið 2019/2020 vegna heimsfaraldurs. Gunnar Róbertsson var markahæstur í sigrinum í gær með átta mörk en Björgvin Páll Gústavsson var með 54% markvörslu í marki Vals. Valur sló þar með tæplega eins árs met FH en FH vann Fram í undanúrslitum í fyrra með 16 markamun 36-20, 24. apríl á síðasta ári. Stærstu sigrar í undanúrslitum Íslandsmóts karla frá upphafi: 2010/2011 FH - Fram 32-21 Valur og KA mætast á Akureyri á fimmtudaginn í leik tvö í einvíginu.
2016/2017 Valur - Fram 27-15
2015/2016 Afturelding - Valur 29-16
2023/2024 Valur - Afturelding 39-25
2013/2014 Hauar - FH 39-24
2024/2025 FH - Fram 36-20
2025/2026 Valur - KA 39-21.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.