Guðmundur Helgi Pálsson verður næsti þjálfari kvennaliðs Aftureldingar í Grill66-deildinni samkvæmt heimildum Handkastsins. Guðmundur Helgi tekur við liðinu af Andrési Gunnlaugssyni sem tók við liðinu fyrir tímabilið eftir að Jón Brynjar Björnsson hafi þurft að stíga til hliðar vegna flutninga erlendis með fjölskyldunni síðasta sumar. Jón Brynjar tók við liði Aftureldingar sumarið 2024 eftir að Guðmundur Helgi hafði óskað eftir því að stíga til hliðar sem þjálfari liðsins. Þá hafði Afturelding tapað í umspili um laust sæti í Olís-deild kvenna gegn Gróttu. Guðmundur Helgi tók við liði Aftureldingar í desember árið 2019 eftir að Haraldur Þorvarðarson hætti með liðið á miðju tímabili. Afturelding endaði í næst neðsta sæti Grill66-deildarinnar á þessu tímabili með 13 stig, jafn mörg stig og Fram 2 sem var á botninum. valur 2 og Fjölnir voru með 14 stig í 5. og 6.sæti deildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.