
Benedikt Marinó Herdísarson hægri skytta Stjörnunnar hefur að öllum líkindum leikið sinn síðasta leik á tímabilinu en Stjarnan leikur þessa dagana í úrslitum í umspilinu um laust sæti í Olís-deildinni á næstu leiktíð. Benedikt Marinó var ekki með Stjörnunni í fyrsta leik einvígisins gegn Herði í vikunni sem Stjarnan vann með fimmtán mörkum 35-20 eftir að hafa verið 16-10 yfir í hálfleik. Liðin mætast öðru sinni á Ísafirði á morgun klukkan 18:00 en vinna þarf þrjá leiki í einvíginu til að tryggja sér sæti í Olís-deildinni á næstu leiktíð. Sverrir Eyjólfsson þjálfari Stjörnunnar sagði í samtali við Handkastið að Benedikt hafi orðið fyrir því óláni að fingurbrotna á æfingu liðsins í aðdraganda leiksins gerði Herði og gerði ekki ráð fyrir því að Benedikt gæti leikið meira með liðinu á tímabilinu. Benedikt er þar með fjórði örvhenti leikmaður Stjörnunnar sem glímir við meiðsli en Gauti Gunnarsson og Pétur Árni Hauksson hafa báðir lokið leik á tímabilinu vegna langvarandi meiðsla og þá glímir fyrirliði liðsins, Starri Friðriksson við meiðsli í baki og hefur ekkert leikið með Stjörnunni í síðustu leikjum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.