
Ringsted stigu stórt skref í að halda sér í dönsku úrvalsdeildinni með sigri í dag en liðið er á toppi fall umspilsins með fimm stig. Einnig fór fram lokaumferðin í hefðbundinni deildarkeppni í Noregi þar sem öll Íslendingaliðin unnu sína leiki. Ringsted vann góðan sigur á útivelli gegn Nordsjælland, 26-30. Guðmundur Bragi Ástþórsson komst ekki á blað en gaf eina stoðsendingu á meðan Ísak Gústafsson skoraði tvö mörk úr þremur skotum, gaf eina stoðsendingu og fékk eina brottvísun að auki. Tveir leikir fóru einnig fram í topp átta umspilinu en Álaborg rétti úr kútnum eftir óvænta tapið gegn Fredericia og unnu nokkuð þægilegan sigur á Skjern á heimavelli, 32-23 á meðan Fredericia hélt áfram að koma á óvart og unnu sinn annan leik, í þetta sinn gegn GOG á útivelli, 23-28. Álaborg og Fredericia efst í riðlinum með fjögur stig á meðan GOG eru með þrjú stig og Skjern eru með núll stig. Í Noregi fór fram lokaumferðin í hefðbundinni deildarkeppni en deildarmeistararnir í Elverum unnu sex marka sigur á Fjellhammer, 33-27 þar sem Tryggvi Þórisson skoraði fjögur mörk úr fimm skotum fyrir heimamenn. Kolstad unnu þá öruggan sigur á Halden, 34-26 þar sem Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum og gaf sex stoðsendingar, Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði tvö mörk úr tveimur skotum og fékk eina brottvísun og að lokum fékk Sigurjón Guðmundsson tækifæri í markinu og hann varði þrjú skot af þeim ellefu sem hann fékk á sig eða 27% markvarsla. Að lokum unnu Drammen flottan útisigur á Follo HK, 30-32 en Ísak Steinsson fékk tækifæri í marki liðsins og varði þrjú skot af þeim þrettán sem hann fékk á sig eða 23% markvarsla. Elverum endaði sem deildarmeistari í ár á meðan Kolstad endaði í öðru sæti, fjórum stigum á eftir þeim og Drammen endaði í fjórða sætinu. Úrslit dagsins: Nordsjælland 26-30 Ringsted Aalborg 32-23 Skjern GOG 23-28 Fredericia Elverum 33-27 Fjellhammer Kolstad 34-26 Halden Follo HK 30-32 Drammen

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.