HM í dag – Svíar úr leik þrátt fyrir sigur – Tékkland skoraði 14 mörk
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Nathalie Hagman (THOMAS KIENZLE / AFP)

Sex leikir fóru fram á heimsmeistaramóti kvenna sem fram fer í Þýskalandi og Hollandi þessa dagana. Leikið var í milliriðlum í dag og í kvöld.

Japan og Ungverjaland skildu jöfn 26-26 í leik þar sem Japan var mest sex mörkum yfir í seinni hálfleik en Ungverjarnir komu til baka og jöfnuðu í lokin. Mikilvægt stig fyrir Ungverjaland sem eru i 2.sæti riðilsins með sjö stig, þremur stigum meira en Rúmenía og hafa því tryggt sér í 8-liða úrslit keppninnar.

Rúmenía vann 20 marka sigur á Senegal 37-17 og Danmörk vann þrettán marka sigur á Sviss 36-23.

Í hinum milliriðlinum vann Brasilía sex marka sigur á Angóla 32-26 og tryggðu sér þar með sæti í 8-liða úrslitum keppninnar en Brasilía komst mest tíu mörkum yfir í leiknum. Noregur er einnig komið í 8-liða úrslit eftir 23 marka sigur á Tékklandi 37-14 en Svíþjóð vann Suður-Kóreu 32-27 en sá sigur dugar Svíum skammt því liðið hefur tapaði bæði gegn Noregi og Brasilíu í keppninni.

Heimsmeistaramótið heldur áfram á morgun en íslensku stelpurnar verða í eldlínunni annað kvöld þegar þær mæta Færeyjum klukkan 19:30 í lokaleik sínum á mótinu.

Úrslit dagsins:
Angóla - Brasilía 26-32
Rúmenía - Senegal 37-17
Japan - Ungverjaland 26-26
Svíþjóð - Suður-Kórea 32-27
Tékkland - Noregur 14-37
Sviss - Danmörk 23-36

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top