Alfreð Gísla hefur valið EM hóp Þjóðverja – Flestir frá Guðjóni Val
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Tim Freihöfer - Füchse Berlin (SVEN HOPPE / dpa Picture-Alliance via AFP)

Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari Þýskalands tilkynnti í morgun þá 18 leikmenn sem hann valdi í lokahóp Þjóðverja fyrir Evrópumótið sem hefst 15. janúar næstkomandi.

Vinstri hornamaður þýsku meistarana í Fuchse Berlín Tim Freihöfer er ekki í hópnum og þá vekur athygli að hinn reynslu mikli Timo Kastening hægri hornamaður MT Melsungen er heldur ekki í hópnum. Í stað Freihöfer valdi Alfreð Rune Dahmke fyrirliða Kiel ásamt Lukas Mertens leikmanns Magdeburg.

Þá valdi hann Mathis Häseler leikmann Gummersbach í stað Timo Kastening. Mathis Häseler er á leið á sitt fyrsta stórmót með þýska landsliðinu.

Athygli margra vekur að Alfreð valdi hægri hornamanninn Mathis Häseler hjá Gummersbach umfram hinn reynda Timo Kastening leikmann MT Melsungen. Häseler er einn þeirra sem voru í sigurliði Þýskalands á HM 21 árs landsliða sumarið 2023. Alls eru sex leikmenn úr því liði í A-landsliðinu að þessu sinni. Häseler er þó sá eini af sex menningunum sem tekur þátt í stórmóti A-landsliða í fyrsta sinn.

Þýska landsliðið leikur í A-riðli á EM ásamt Austurríki, Serbíu og Spánverjum. Fyrsti leikurinn verður gegn Austurríki 15. janúar.

Þýski EM-hópurinn:

Markverðir:
David Späth (Rhein-Neckar Löwen)
Andreas Wolff (THW Kiel)

Vinstra horn:
Rune Dahmke (THW Kiel)
Lukas Mertens (SC Magdeburg)

Vinstri skyttur:
Marko Grgic (SG Flensburg-Handewitt)
Tom Kiesler (VfL Gummersbach)
Julian Köster (VfL Gummersbach)
Matthes Langhoff (Füchse Berlin)
Miro Schluroff (VfL Gummersbach)

Miðjumenn:
Juri Knorr (Aalborg Handbold)
Nils Lichtlein (Füchse Berlin)

Hægri skyttur:
Franz Semper (SC DHfK Leipzig)
Renars Uscins (TSV Hannover-Burgdorf)

Hægra horn:
Mathis Häseler (VfL Gummersbach)
Lukas Zerbe (THW Kiel)

Línumenn:
Justus Fischer (TSV Hannover-Burgdorf)
Johannes Golla (SG Flensburg-Handewitt)
Jannik Kohlbacher (Rhein-Neckar Löwen)

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top