Sjáðu tvær óvæntar stoðsendingar Elliða Snæs
Sævar Jónasson

Það var ekki nóg með að Elliði Snær Viðarsson hafi endað sem markahæsti leikmaður íslenska landsliðsins í tveggja marka tapi gegn Svíþjóð í fyrri vináttulandsleik þjóðanna í Valsheimilinu í gær þá gaf hann einnig þrjár stoðsendingar.

Tvær af þremur stoðsendingum hans í leiknum voru af dýrari gerðinni en í fyrra skiptið gaf hann stoðsendingu á Orra Frey Þorkelsson og í seinni hálfleik gaf hann síðan keimlíka stoðsendingu á Sigvalda Björn Guðjónsson í hægra horninu.

RÚV tók saman stoðsendingarnar og birti á samfélagsmiðlum sínum eftir leikinn í gær.

Það verður áhugavert að sjá hvort Elliði Snær geri slíkt hið sama í Kaplakrika á morgun þegar þjóðirnar mætast í annað sinn eða hvort Svíarnir verði búnir að leikgreina þessar stoðsendingar og komi í vegfyrir að Elliði nái að leika sama leik aftur.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top