
Ómar Ingi Magnússon (Kristinn Steinn Traustason)
Ómar Ingi Magnússon leikmaður Evrópumeistara Magdeburg verður fyrirliði íslenska landsliðsins á Evrópumótinu í janúar sem fram fer í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Riðill Íslands verður leikinn í Kristianstad í Svíþjóð og leikur Ísland sinn fyrsta leik á mótinu, föstudaginn 16.janúar. Snorri Steinn Guðjónsson tilkynnti þetta á fréttamannafundi sem haldinn var í hádeginu í dag er hann tilkynnti EM hóp sinn. Ómar Ingi hefur verið fyrirliði landsliðsins eftir að Aron Pálmarsson hætti eftir síðasta heimsmeistaramót. Ómar Ingi er sjötti leikjahæsti leikmaður íslenska hópsins sem valinn var af Snorra Steini í hádeginu í dag. Ómar Ingi hefur leikið alls 91 landsleik á ferlinum. Fyrsti leikur Íslands á EM verður gegn Ítalíu í Kristianstad 16.janúar. Landsliðið kemur saman til æfinga 2. janúar áður en það heldur til Frakklands í æfingamót 8.janúar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.