Við vorum vel undirbúnir í varnartaktík Ítalíu
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Gísli Þorgeir Kristjánsson var frábær í liði Íslands í góðum þrettán marka sigri gegn Ítalíu í gær og segist hann ekkert hafa sofið eins og vanalega eftir svona leik. Gísli Þorgeir skoraði sjö mörk og var næst atkvæðamestur á eftir Janusi Daða sem leiddu sóknarleik Íslands í gær.

,,Ég náði ekkert svakalega mikið að sofa eins og vanalega eftir svona mikinn adrenalíns leik en maður svaf samt vel þessa fáu tíma sem maður fékk og ég er bara heilt yfir sáttur."

Ítalía spilaði framlengjandi vörn og Gísli Þorgeir viðurkennir að þetta hafi verið svolítið öðruvísi og ekki það sem hann er vanur.

,,Þetta var svolítið öðruvísi en maður tekur bara hverja vörn fyrir sig og reynir að rína hana og sjá hvar möguleikarnir eru að fá gott færi fyrir sóknina þannig þetta var bara fínt."

Gísli Þorgeir Kristjánsson segir að Íslenska liðið hafi verið vel undirbúið fyrir þessa varnataktík Ítala. ,,Maður var undirbúin fyrir þetta og reyndi að sjá fyrir sér í hausnum allskonar sviðsmyndir og hvað gæti mögulega gerst og maður þarf svolítið að vera búin að sjá þetta fyrir og það er lykillinn."

Ísland mætir Póllandi í öðrum leik riðlakeppninnar á morgun en leikurinn hefst klukkan 17:00 í Kristianstad.

,,Þeir eru stórir, mjög hraðir og sterkir. Þeir voru mikið í 7 á 6 í sókninni þeirra á móti Ungverjum og þetta er ekki sama einn á einn skrímsli og Ítalirnir voru og ekki sömu viðstöðulausu árásirnar sem þeir voru að gefa okkur í gær en ég held að þetta sé bara sama concept í rauninni og við gettum ekki búist við því að vera vinna með tíu eftir korter og ekki halda að þessi lið geti ekki haldið í við okkur. Ef við verðum góðir og Pólverjar góðir þá vinnum við samt og það er mitt mat en það er alls ekki sjálfsagt að við séuim góðir, við þurfum að vera 110% og þá er þetta bara einhverneigin miklu skemmtilegra heldur en að vera í 99% og vera í einhverju barsli."

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að neðan.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top