Evrópudeildin: Þorsteinn Leó markahæstur í spennutrylli og önnur úrslit kvöldsins
{{brizy_dc_image_alt entityId=

8 leikir fóru fram í milliriðlakeppni Evrópudeildarinnar í kvöld og áttum við Íslendingar 8 fulltrúa í eldlínunni í kvöld.

Tryggvi Þórisson og félagar í Elverum lögðu Skanderborg Aarhus 31-24. Tryggvi skoraði ekki í kvöld og Kristján Örn Kristjánsson er enn frá vegna meiðsla.

Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði 4 mörk þegar IFK Kristianstad unnu eins marks sigur á Melsungen 31-30 eftir að staðan hafði verið jöfn 16-16 í hálfleik. Reynir Þór Stefánsson skoraði 3 mörk og Arnar Freyr Arnarson 1 mark í liði Melsungen.

Þorsteinn Leó Gunnarsson var markahæstur með 6 mörk þegar lið hans FC Porto vann BM Granollers 34-33.

Benfica mátti þola 33-27 tap í heimsókn þeirra til HC Vardar. Stiven Tobar Valencia skoraði 4 mörk fyrir Benfica.

Heiðmar Felixson, aðstoðarþjálfari, fagnaði 31-27 sigri Hannover gegn Óðni Þór Ríkharðssyni og félögum í Kadetten Schaffhausen. Óðinn átti hinsvegar frábær leik og var markahæstur með 9 mörk.

Montpellier unnu 35-32 sigur á Flensburg þar sem Jack Thurin og Agustín Casado voru markahæstir með 6 mörk fyrir Montpellier og Marko Grgic var atkvæðamestur með 9 mörk fyrir Flensburg.

RK Nexe unnu Fredericia 26-33 þar sem Matko Moslavac var markahæstur fyrir RK Nexe með 8 mörk og Fredrik Mossestad skoraði 6 mörk fyrir danska liðið.

Þá unnu Kiel stórsigur á Bidasoa Irun 27-20 þar sem Rasmus Ankermann og Bence Imre voru markahæstir með 6 mörk hvor fyrir Kiel og Piotr Mielczarski og Inaki Cavero Etxepane skoruðu 4 mörk hvor fyrir Bidasoa Irun.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top