Dagur Sigurðsson (Anne-Christine POUJOULAT / AFP)
Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Króatíu, er sagður ætla sniðganga fjölmiðlaviðburð á morgun fyrir undanúrslitaleik Króata gegn Þjóðverjum á EM. Króatar eru brjálaðir yfir skipulagningu EHF í kringum úrslitahelgina í Herning í Danmörk Danski fjölmiðillinn Sportske novosti greindi frá þessu núna í dag en það er TV 2 í Danmörku sem vekur á því athygli að þar séu menn brjálaðir með að hafa þurft að ferðast með rútu frá Malmö í Svíþjóð yfir til Herning í Danmörku í morgun eftir að keppni í milliriðlum lauk. Króatar voru fyrir mjög ósáttir með skipulagningu EHF á keppnisfyrirkomulagi EM þar sem að þeir, líkt og önnur lið í milliriðli tvö, þurftu að spila tvo daga í röð og svo ferðast til Danmerkur í dag, degi eftir síðasta leik sín í milliriðlum og degi fyrir undanúrslitaleikinn á morgun. Króatar fengu enga gistingu í Herning og liðið þarf að vera í Silkeborg sem er um 40 kílómetrum frá Herning og héldu því fram að þeir væru einu sem væru þar en svo er ekki. Þýska landsliðið heldur einnig til þar í aðdraganda undanúrslitaleiksins. Dagur Sigurðsson er sagður ætla sleppa fjölmiðlaviðburð á morgun á vegum EHF nokkrum klukkustundum fyrir undanúrslitaleikinn gegn Þjóðverjum en þetta kom fram í frétt Gol.hr og er einnig haldið fram að Dagur muni á blaðamannafundi króatíska landsliðsins í dag gera grein fyrir óánægju Króata með skipulagningu EHF á mótinu. Vert er að taka fram að Króatar voru ekki einu sem þurftu að ferðast með rútu frá Malmö til Herning í morgun en samkvæmt öruggum heimildum Handkastins ferðaðist íslenska landsliðið einnig með rútu í morgun frá Svíþjóð og yfir til Danmerkur en Íslenska landsliðið er sagt fá gistingu í Herning. Rasmus Boysen birti þessa mynd á samfélagsmiðlum í dag en hér má sjá mynd úr rútu Króata í morgun.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.