Danmörk (Ritzau Scanpix via AFP)
,,Lykillinn gegn Íslandi er að ná upp góðum varnarleik strax," sagði línumaðurinn, Magnus Saugtrup liðsfélagi Gísla Þorgeirs Kristjánssonar og Ómars Inga Magnússonar hjá Magdeburg sem verður í eldlínunni í kvöld er Ísland og Danmörk mætast í undanúrslitum Evrópumótsins. ,,Þeir munu sækja mikið á markið eins og þeir gera alltaf. Þeir eru með mjög gott lið og það verða margar maður á mann einvígi og mikill hraði í gegnum brotum þeirra. Þetta verður krefjandi. Það verður spennandi að sjá hver nær yfirhöndinni, sérstaklega í einvígjunum,“ sagði Magnus Saugstrup við Hbold.dk. Fyrir Saugstrup snýst þetta mjög mikið um smáatriðin í danska varnarleiknum. Fjarlægðir, tímasetning og hugrekki til að standa rétt í aðstæðunum. Hann telur að þar muni reyna mikið á danska liðið. ,,Við verðum að finna rétta hæð og rétta fjarlægð frá markinu og hver frá öðru. Það verður mikilvægt. Hvort það dugi til og hvort það virki verðum við að sjá. Varnarlega þurfum við að vera aðeins betri í að mæta þeim á réttum tíma,“ sagði hann. Leikur Íslands og Danmerkur hefst klukkan 19:30 í Herning í kvöld.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.