Gísli Þorgeir hefði viljað fá fleiri vítaköst
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Gísli Þorgeir Kristjánsson (Jonathan Nackstrand / AFP)

Gísli Þorgeir Kristjánsson var allt annað en ánægður með dómgæsluna eftir tap Íslands gegn Danmörku í undanúrslitum Evrópumótsins í Boxen í Herning í gærkvöldi.

Að hans sögn einkenndist leikurinn af nokkrum vafasömum ákvörðum dómaranna sem komu frá Noregi í leiknum sem féllu Dönum í hag.

,,Það voru nokkrar ákvarðanir þar sem Danir fengu vítaköst en við ekki. Það eru líka nokkur atvik sem ég þarf að sjá aftur en þetta er mín tilfinning strax eftir leik," sagði Gísli Þorgeir í viðtali við TV 2 Sport eftir leik. Danmörk hafði betur í leiknum með þremur mörkum 31-28 en Gísli Þorgeir skoraði tvö mörk í leiknum og fiskaði fjölmörg vítaköst. Hann hefði hinsvegar viljað fá fleiri vítaköst.

Þegar hann var spurður hvort hann teldi að dómararnir hefðu verið Dönum í hag neitaði hann að ganga svo langt.

„Ég sé þetta frekar þannig að það hafi verið nokkur atvik þar sem dómarnir flautuðu of snemma og leyfðu okkur ekki að spila þann leik sem við vildum. Þeir stöðvuðu leikinn of fljótt. Ég veit ekki afhverju. Á sama tíma finnst mér eins og það hafi verið nokkrar ákvarðanir í fyrri hálfleik þar sem við hefðum getað fengið miklu fleiri vítaskot, en við fengum ekki,“ sagði Gísli Þorgeir að lokum við TV 2 Sport.

Ísland mætir Króatíu í leik um bronsið á Evrópumótinu á morgun klukkan 14:15.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top