Orri svaf yfir sig í morgun – Snorri nennir ekki að eyða orku í þetta EHF lið
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Orri Freyr Þorkelsson (Bo Amstrup/Ritzau Scanpix)

Orri Freyr Þorkelsson leikmaður íslenska landsliðsins svaf yfir sig í morgun er hann átti að mæta ásamt nokkrum leikmönnum íslenska landsliðsins á fjölmiðlahitting sem haldinn var í Boxen höllinni í Herning.

,,Ég missti af rútunni því ég hélt við færum af stað 10:30. Ég náði að koma hingað þökk sé Gulla (Jóni Gunnlaugi Viggóssyni, starfsmanni HSí). Ég sofnaði milli þrjú og fjögur í nótt en síðan þurfti ég að mæta. Það er partur af þessu. Ég er svolítið þreyttur núna, ég viðurkenni það alveg," sagði Orri Freyr í viðtali við Val Pál Eiríkssyni hjá Vísi.

Fjallað hefur verið um fjölmiðlahittinginn sem íslenska landsliðið þurfti að mæta í, á morgun klukkan 10:30 á staðartíma eftir erfiðan leik seint í gærkvöldi en margir af landsliðsstrákunum voru ekki að sofna fyrr um seint og síðan meir.

Ísland mætir Króatíu í leik um bronsverðlaun á Evrópumótinu á morgun klukkan 14.15 og var fjölmiðlahittingur partur af undirbúningi fyrir þann leik.

Snorri Steinn Guðjónsson sagði í viðtali við Henry Birgi Gunnarsson hjá Vísi ekki nenna að eyða orku í þetta EHF lið, eins og hann orðaði það. Dagur Sigurðsson þjálfari Króata hefur gagnrýnt EHF við framkvæmd úrslitahelgarinnar.

,,Þetta lá fyrir áður en mótið hófst. Stendur þar í einhverjum helvítis bæklingi og ekkert við þessu að gera. Við getum ekki kvartað yfir því og þurfum að sinna þessu eins og öðru. Ég er sammála öllu því sem Dagur hefur sagt en ég nenni ekki að eyða orku í þetta EHF lið," sagði Snorri í viðtali við Vísi.

Nú er bara að vona að Strákarnir okkar fái góðan nætursvefn í kvöld og mæti tilbúnir í lokaleik sinn á Evrópumótinu á morgun.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top