Simon Hald enn á sjúkrahúsi eftir leikinn gegn Íslandi
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Gísli Þorgeir Kristjánsson - Simon Hald (Jonathan Nackstrand / AFP)

Danski varnar- og línumaðurinn, Simon Hald er enn á sjúkrahúsi í Herning í Danmörku en þangað fór hann eftir sigur Danmerkur gegn Íslandi í undanúrslitum Evrópumótsins í gærkvöldi.

Simon Hald fékk tvívegis höfuðhögg í fyrri hálfleik og kom ekkert við sögu í leiknum í seinni hálfleik.

Landsþjálfari Dana, Nikolaj Jacobsen sagði í viðtölum við danska fjölmiðla í Boxen í Herning í dag að Simon Hald væri enn á sjúkrahúsi en líði vel.

,,Hann þarf að gangast undir nánari læknisskoðun áður en hann verður útskrifaður. Við vonumst til að hann geti yfirgefið sjúkrahúsið í dag," sagði Nikolaj Jacobsen sem segist ekki útiloka að Simon Hald geti leikið með Dönum í úrslitaleiknum Evrópumótsins á morgun gegn Þýskalandi.

Danmörk og Þýskaland mætast í úrslitum Evrópumótsins á morgun klukkan 17:00 en klukkan 14:15 mætast Ísland og Krótaía í leik um bronsið.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top