Gísli Þorgeir Kristjánsson ((Photo by Thomas Traasdahl / Ritzau Scanpix via AFP)
Íslenska landsliðið mætti því Króatíska í leik um þriðja sætið á Evrópumótinu í handbolta í dag. Það er skemmst frá því að segja að Króatar höfðu betur í enn eitt skiptið 33-34. Íslenska liðið byrjaði leikinn af miklum krafti og virtust ætla selja sig dýrt í leiknum en færanýtingin var að þvælast fyrir liðinu í upphafi leiks og fóru leikmenn illa með færin í byrjun leiks. Króatar náðu að byggja upp gott forskot í fyrri hálfleik. Björgvin Páll Gústavsson kom inn með fína innkomu og kom Íslandi aðeins inn í leikinn aftur með fínum vörslum en Króatar leiddu með þrem mörkum í hálfleik 14-17. Strákarnir Okkar voru klaufar allan síðari hálfleikinn og fengu dýrar tvær mínútur þegar við vorum að elta leikinn. Viggó Kristjánsson fékk beint rautt spjald á 37.mínútu þegar hann fór í andlitið á Ivan Martinovic. Ómar Ingi og Gísli Þorgeir héldu uppi sóknarleik Íslands líkt og í fyrri leikjum en varnarlega náðum við illa að ganga út í skyttur Króata. Viktor Gísli kom inná undir lok leiksins og náði að verja 2 vítaskot sem hleypti okkur inn í leikinn en Króatar gerðu svo út um leikinn þegar 20 sekúndur voru eftir þegar þeir komust tveim mörkum yfir. Haukur Þrastarson skoraði lokamark Íslands þegar lokaflautið gall í höllinni og eins marks tap niðurstaða, 33-34. Ísland endar því í fjórða sæti á Evrópumótinu og biðin eftir medalíu á Evrópumótinu verður því ögn lengri. Ómar Ingi Magnússon var markahæstur í liði Íslands með 12 mörk úr 12 skotum en hjá Króötum var Tin Lucin markahæstur með 9 mörk. Björgvin Páll varði 6 skot og Viktor Gísli 5 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.