Galið að Inga Sæland fái einn af þessum 150 miðum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ísland (Johan Nilsson /AFP)

Stymmi klippari var lítt hrifinn af því í uppgjörsþætti Handkastsins eftir tap Íslands gegn Danmörku í undanúrslitum Evrópumótsins að Inga Sæland hafi verið meðal áhorfenda í stúkunni.

Stymmi lét skoðanir sínar í ljós í þættinum og óskaði eftir því að Skolphreinsun Ásgeirs yrði send á ríkisstjórnina eins og hún leggur sig.

,,Verðbólgan er í 5,2% og allt í gangi. En þegar Inga Sæland fór að væla í EHF, mætt til Danmerkur til að baða sig í sviðsljósinu þegar landsliðinu gengur vel eins og hefur tíðkast síðustu 20-30 ár. Þetta fer alltaf jafn mikið í taugarnar á mér. Þetta lið kemur, það skiptir ekki máli hvort það séu Ólympíuleikar, fótboltinn, handboltinn eða karfan. Þau eru alltaf mætt til að drekkja í sig athyglina. Inga Sæland, mætir og segir að það sé skandall að EHF geti ekki skaffað okkur fleiri en 150 miðum, sem ég er alveg sammála henni með. En mér finnst töluvert stærri skandall að HSÍ sé að hringja út köld símtöl á kvöldin til að biðja um eingreiðslu eða styrk til að reka sambandið á meðan það er verið að dæla peningum í einhver fucking gæluverkefni út um hvippinn og hvappinn," sagði Stymmi klippari og hélt áfram:

,,Þorgerður Katrín var að gefa einhverju LGBTI samfélagi 100 milljónir. Á meðan eru sérsamböndin okkar að berjast í bökkum. Talandi um líf atvinnumannanna okkar, strákarnir okkar eru ekki að fá krónu fyrir þetta. Þeir eru sofandi á gólfum í rútu og fá 0 kr. fyrir þetta,” sagði Stymmi klippari en Sérfræðingurinn leiðrétti Stemma í kjölfarið og benti honum á að leikmenn íslenska landsliðsins fengu dagpening, í kringum 50 evrur á dag. 

,,Ég mun í hvert einasta tækifæri sem ég sé einhver ráðherra mættan til að eigna sér sviðsljósið þegar íþróttaliðum gengur vel og minna á að það kemur ekki króna frá þessu liði. Ég veit ekki hversu mikið Sinfónían fær margar milljónir á hverju ári á meðan íþróttirnar sem eru ein besta forvörnin fær ekki krónu.”

Arnar Sveinn Geirsson sem var gestur í Handkastinu var sammála Stymma klippara.

,,Þetta væri allt annað ef verið væri að styðja við íþróttir almennilega, þá getur þetta fólk farið út og verið í kringum landsliðin, ekki vandamálið og verið í sviðsljósinu.”

,,Það að Inga Sæland fái einn af þessum 150 miðum er galið. Hún hefur aldrei mætt á handboltaleik í Olís-deildinni á ævinni. Það er galið að hún fái miða, látið einhvern í Sérsveitinni fá þennan miða," bætti Stymmi klippari við í lokin og lauk umræðunni um ríkisstjórnina og íslenska ráðamenn sem láta sig sjaldan vanta í stúkunni erlendis þegar íslensku landsliðunum gengur vel eða eru að taka þátt á stórmótum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top