Mathias Gidsel (HENNING BAGGER / Ritzau Scanpix via AFP)
Mathias Gidsel sló markamet Evrópumótsins í úrslitaleik Danmerkur og Þýskalands í dag en Mathias Gidsel sló met sem Norðmaðurinn, Sander Sagosen setti á Evrópumótinu 2020. Mathias Gidsel gerði sér lítið fyrir og skoraði alls 68 mörk á Evrópumótinu í ár sem er þremur mörkum meira en Sander Sagosen gerði á Evrópumótinu 2020. Þetta mót fer því í sögubækurnar fyrir Gidsel sem var auk þess valinn MVP mótsins og varð Evrópumeistari með Dönum eftir sigur á Þýskalandi í úrslitaleiknum. Flest mörk skoruð á einu Evrópumóti: Mathias Gidsel - 68 (2026) Sander Sagosen 65 (2020) Simon Pytlick - 62 (2026) Francisco Costa - 61 (2026) Kiril Lazarov - 61 (2012)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.