Gunni Magg fagnar bronsinu með Króötum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Gunnar Magnússon (Sævar Jónasson)

Gunnar Magnússon þjálfari Hauka hefur heldur betur haft ná um að vera síðustu vikur en hann hefur unnið að leikgreiningu fyrir króatíska landsliðið á Evrópumótinu og líkt og hann hefur gert undanfarin tvö ár eða frá því að Dagur Sigurðsson tók við króatíska landsliðinu.

Gunnari hefur greinilega gengið vel að leikgreina íslenska landsliðið í síðustu leikjum því Króatía hefur unnið Ísland þrívegis á einu ári. Einu sinni á heimsmeistaramótinu í fyrra og tvívegis á Evrópumótinu.

Hann sagði í viðtali við Handkastið í desember að hann væri ekki viss hvort hann færi út á EM í þetta skiptið og myndi frekar vinna að heiman.

,,Ég hef farið á svo mörg stórmót, að ég hef gaman að því að vera heima í stofunni og vera sófa sérfræðingur heima og geta slakað aðeins á. Ég hef ekki ákveðið mig alveg en ég á ekki von á því að fara út,” sagði Gunni Magg í viðtal við Handkastið.

Gunnar Magnússon er hinsvegar staddur í Herning og var meðal áhorfenda í stúkunni er Króatía vann Ísland í leik um bronsið á Evrópumótinu. Hann fagnaði síðan með leikmönnum og starfsliði Króata eftir sigurinn en Handkastið fékk senda mynd af Gunnari með Dominik Kuzmanovic eftir leik þar sem fór vel á þeim félögunum. Dominik Kuzmanovic tók ekki þátt í leiknum vegna veikinda en gat þó brosað eftir leikinn.

Gunnar verður í eldlínunni á fimmtudaginn þegar Olís-deild karla fer af stað en Haukar mæta toppliði Vals á fimmtudagskvöldið í N1-höllinni á Hlíðarenda.

Aðsend)

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top