Ísland einungis einu sinni unnið Króatíu á stórmóti
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Zvonimir Srna ((Photo by Andreas Hillergren/TT / TT NEWS AGENCY / AFP)

Ísland og Króatía mætast í lokaleik þjóðanna á Evrópumótinu í dag þegar liðin leika um bronsverðlaun mótsins. Þjóðirnar mættust fyrr á mótinu í milliriðli keppninnar þar sem Króatía hafði betur með einu marki 30-29 í Malmö Arena.

Bronsleikurinn hefst klukkan 14:15 í dag en úrslitaleikur mótsins hefst klukkan 17:00 þegar Danmörk og Þýskaland mætast.

Þegar rýnt er í söguna mætti segja að Króatía hafi haft ótrúleg tök á íslenska landsliðinu undanfarin 20 ár og gott betur en það.

Ísland hefur nefnilega aðeins einu sinni unnið Króatíu á stórmóti og það var í milliriðli Evrópumótsins í Þýskalandi árið 2024 þegar Ísland vann Króatíu 25-20. Dagur Sigurðsson tók við Króatíu að móti loknu. Bjarki Már Elísson fór á kostum í leiknum og skoraði átta mörk. Aron Pálmarsson og Óðinn Þór Ríkharðsson skoruðu sex mörk hvor. Um var að ræða fyrsta stórmót Snorra Steins Guðjónssonar sem þjálfara Íslands.

Þetta var fyrsti sigur Íslands á Króatíu í stórmóti en síðasti sigur Íslands gegn Króatíu fyrir leikinn árið 2024 kom árið 2004 þegar liðin mættust á svokölluðu Heimsbikarmóti í Svíþjóð í nóvember það ár. 

Fyrsti leikur Íslands og Króatíu var vináttuleikur í Menden í Þýskalandi árið 1992 en Króatar voru þá nýorðin sjálfstæð þjóð að nýju og stóð borgarastríðið í Júgóslavíu enn yfir. Ári síðar mættust liðin í fyrsta sinn í forkeppni stórmóts og var það forkeppni fyrsta Evrópumótsins. Fyrri leikurinn var 20. október 1993 í Kaplakrika og vann Ísland leikinn 24-22. Síðari leikinn vann Króatía hins vegar 26-18 í Zagreb og tryggðu sér þar með sæti á EM á kostnað Íslands.

Ísland og Króatía mættust á Heimsbikarmótinu í Svíþjóð í nóvember 2004 og vann Ísland með 31 marki gegn 30.

Leikir Íslands og Króatíu í gegnum tíðina:

1993: Ísland - Króatía 24-22 (Leikið í Kaplakrika)
1993: Ísland - Króatía 18-26 (Leikið í Zagreb)
2004: Ísland - Króatía 30-34
2004: Ísland - Króatía 31-20 (Heimsbikarmótið í Svíþjóð)
2006: Ísland - Króatía 28-29
2010: Ísland - Króatía 26-26
2011: Ísland - Króatía 33-34
2012: Ísland - Króatía 29-31
2012: Ísland - Króatía 28-31
2016: Ísland - Króatía 28-37
2018: Ísland - Króatía 22-29
2019: Ísland - Króatía 27-31
2022: Ísland - Króatía 22-23
2024: Ísland - Króatía 35-30 - Fyrsti sigur Íslands á Króatíu á stórmóti
2025: Ísland - Króatía 26-32
2026: Ísland - Króatía 29-30

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top