
Ómar Ingi Magnússon (Thomas Traasdahl / Ritzau Scanpix via AFP)
Fyrirliði Íslands, Ómar Ingi Magnússon var að vonum svekktur eftir eins marks tap gegn Króatíu í lokaleik Evrópumótsins en liðin mættust í bronsleik keppninnar. Króatía vann leikinn 34-33 en Ómar Ingi var stórkostlegur í leiknum og skoraði 12 mörk úr 12 skotum. ,,Við erum mjög svekktir. Við náðum okkur aldrei almennilega á strik í dag og náðum ekki að spila okkar leik. Við vorum að elta allan leikinn og þetta var erfitt frá fyrstu mínútu leiksins. Við börðumst og reyndum hvað við gátum en það var ekki nóg. Við þurfum bæði að byrja betur og spila betur fram að loka kaflanum og þetta var ekki nóg,” sagði Ómar Ingi í viðtali við Eddu Sif Pálsdóttur íþróttafréttamanns á RÚV beint eftir leik. ,,Það er gott að komast í undanúrslit og það var stórt skref. Við höfum ekki gert það lengi og barist fyrir því. Við tökum það úr þessu móti og okkur líður eins og við getum tekið þessi lið. Okkur leið vel á móti Danmörku og náðum ekki góðum leik í dag. Við þurfum að skoða það en okkur líður eins og við eigum heima hérna, sem er jákvætt.” Með árangrinum á mótinu tryggði Ísland sér sæti á HM 2027 í Þýskalandi á næsta ári. Lítur hann ekki jákvæðum augum á framtíð liðsins? ,,Klárlega. Við erum helvíti flottir en getum ennþá bætt okkur og það er jákvæða við það. Við erum á fínum stað og verðum vonandi betri.” En hvert er hann uppáhalds moment í mótinu? ,,Að komast í undanúrslitin, mér fannst það geggjað og leikurinn gegn Svíum við vorum helvíti góðir þar.”

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.