Sigvaldi orðinn löglegur á EM
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Sigvaldi Björn Guðjónsson (Julien Kammerer / AFP)

Sigvaldi Björn Guðjónsson, leikmaður Kolstad og íslenska landsliðsins, hefur verið skráður inn í Evrópumótið. Hann kemur inn í leikmannahópinn í stað Andra Más Rúnarssonar.

Sigvaldi verður því gjaldgengur með íslenska landsliðinu í leiknum gegn Króatíu síðar í dag. Leikurinn hefst klukkan 14:15 og verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV.

Andri Már Rúnarsson leikmaður Erlangen hefur verið utan hóps hjá íslenska landsliðinu í undanförnum leikjum eða allt frá því að Einar Þorsteinn Ólafsson kom inn í hópinn eftir veikindi í byrjun hóps.

Fyrst Sigvaldi hefur verið gerður löglegur með íslenska landsliðinu fyrir brons leikinn í dag sem er síðasti leikur Íslands á mótinu mætti gera ráð fyrir því að hann yrði í leikmannahópi Íslands gegn Króatíu í dag. Leikmannahópur Íslands verður tilkynntur klukkutíma áður en leikur hefst.

Sigvaldi kom til móts við íslenska landsliðið fyrir undanúrslitaleikinn gegn Danmörku á föstudaginn en hann var upphaflega ekki í lokahópi Íslands á mótinu. Óðinn Þór Ríkharðsson hefur leikið meira og minna allar mínútur Íslands á mótinu í hægra horninu.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top