Strákarnir lögðu líf og sál í þetta
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Snorri Steinn Guðjónsson (Johan Nilsson/TT / TT NEWS AGENCY / AFP) / Sweden OUT / SWEDEN OUT

Snorri Steinn Guðjónsson var í viðtali við RÚV beint eftir eins marks tap gegn Króatíu í leik um 3.sætið á Evrópumótinu. Króatía hafði betur í leiknum 34-33 eftir að hafa verið mest sex mörkum yfir í leiknum.

,,Þetta eru frábærir drengir, risa karakter og sýndu ótrúlegan andlegan styrk inn á milli. Ég er stoltur af strákunum og ég gat ekki beðið þá um neitt meira á þessu móti. Þeir lögðu líf og sál í þetta og því miður náðum við ekki í þessa medalíu sem við ætluðum okkur og það svíður," sagði Snorri Steinn í viðtalinu við RÚV.

Kári Kristján Kristjánsson spurði Snorra hvort ekki hefði mátt mæta skyttum Króata betur og ofar í leiknum?

,,Alveg örugglega. Mér fannst við alveg mæta þeim hátt og þeir voru líka að finna línuna í fyrri hálfleik og refsuðu okkur fyrir það að fara hærra. Við setjum Arnar Frey inn og förum í 3-3 og erum að brjóta upp leikinn. En það er bara eins og alltaf, það er fullt sem betur mátti fara, það er ekkert öðruvísi núna."

Logi Geirsson vildi fá útskýringar á óstöðugleika liðsins sem við sáum í þessu móti?

,,Ég þarf að kíkja á það. Ég held að flest lið á svona móti glími við einhverjar sveiflur. Kannski eru þær fullmiklar en ég hef því miður ekki eina skýringu fyrir þig eins og er. En vissulega eru einhverjar sveiflur sem ég þarf að kíkja á.”

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top