Danmörk (EHF/kolektiff)
Það ríkir mikið handboltafár í Danmörku eftir ótrúlega velgengni karla landslið þjóðarinnar í handbolta undanfarin ár. Landsliðið vann til enn einu gullverðlaunanna um síðustu helgi er Danmörk vann Þýskaland í úrslitaleik Evrópumótsins. Fyrsti sigur Danmerkur á Evrópumótinu frá árinu 2012 eða í 14 ár. Mikill áhugi er fyrir handbolta í Danmörku og það sýnir sig á áhorfstölum danska landsliðsins á TV2 sem sýnir frá leikjum danska landsliðsins. Yfir 2 milljónir horfðu á úrslitaleik Danmerkur og Þýskalands sem fram fór í Herning í Danmörku þar sem rúmlega 14.000 danskir stuðningsmenn voru meðal áhorfenda í Boxen sem tekur 14.500 manns. Meðaláhorf á leikinn var 1,77 milljón manns. Svipað var upp á teningnum þegar undanúrslitaleikur Danmörkur og Íslands fór fram á föstudagskvöldinu. Íbúafjöldinn í Danmörku er 6.017.343 og því var meira en þriðjungur Dana sem fylgdist með karla landsliðinu tryggja sér Evrópumeistaratitilinn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.