Eltingarleikurinn hjá landsliðs stelpunum heldur áfram
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ísland (MARIJAN MURAT / dpa Picture-Alliance via AFP)

Íslensku landsliðsstelpurnar í Blomberg-Lippe unnu Neckarsulm með tveimur mörkum í 15.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í gærkvöldi, 29-27 eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í hálfleik 16-13.

Þrátt fyrir að hafa verið með yfirhöndina allan leikinn náði Blomberg-Lippe aldrei að slíta sig almennilega frá Neckarsulm en mest náði Íslendingaliðið fjögurra marka forystu í leiknum.

Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði fjögur mörk fyrir Blomberg-lippe og Andrea Jacobsen skoraði tvö mörk en hún gengur í raðir ÍBV næsta sumar. Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði eitt mark í leiknum.

Blomberg-Lippe er eftir sigurinn áfram í 2. sæti deildarinnar með 26 stig jafnmörg stig og Borussia Dortmynd sem hafði betur gegn SV Union Halle-Neustadt 39-29 á útivelli í gærkvöldi. Dortmund á hinsvegar leik til góða á Blomberg-Lippe.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top