
Íslenskir handboltamenn létu að sér kveða á erlendum vettvangi í dag og komu víða við sögu í sigrum liða sinna. Viktor Gísli Hallgrímsson stóð í marki FC Barcelona þegar liðið vann öruggan 23–38 sigur á Ángel Ximénez Puente Genil. Viktor varði 6 skot og endaði með 40% markvörslu í leik þar sem Barcelona hafði yfirhöndina frá upphafi til enda. Í Þýskalandi voru Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir í eldlínunni með HSG Blomberg-Lippe sem lagði Borussia Dortmund Handball 33–31 í toppslag deildarinnar. Díana Dögg skoraði 6 mörk og átti stóran þátt í sigrinum, á meðan Elín Rósa skoraði eitt mark. Með sigrinum fór Blomberg-Lippe á topp deildarinnar, en Dortmund situr í öðru sæti. Bjarki Már Elísson skoraði 4 mörk þegar Veszprém KC vann öruggan 32–20 sigur á Balatonfüredi KSE í ungversku úrvalsdeildinni. Veszprém var með yfirburði í leiknum og aldrei í teljandi vandræðum. Í Norður-Makedóníu skoraði Úlfar Páll Monsi Þórðarsson tvö mörk fyrir RK Alkaloid sem vann sannfærandi 37–21 sigur á HC Butel Skopje.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.