Þrír leikir voru á dagskrá í dag er 27.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar gekk í garð. Fyrsti leikur dagsins fór fram í Wunderino Arena er Kiel tók á móti Eisenach. Leikurinn byrjaði af miklum krafti þar sem liðin skiptust á að skora en áttu Eisenach betri endakafla og fóru með þriggja marka forskot er gengu til búningsklefa. Eisenach var betri til að byrja með í seinni hálfleik og voru með yfirhöndina allt þar til að Kiel skoruðu síðustu tvö mörkin. Lokatölur 30-30. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Elías á Skipagötu með 7 mörk og 6 stoðsendingar. Seinni leikur dagsins var er spútnik lið deildarinnar Lemgo tók á móti Melsungen. Lemgo voru sterkari í fyrri hálfleik þar sem þeir voru yfir með tveimur mörkum í hálfleik. Í seinni hálfleik komu Melsungen menn sterkur inn og voru búnir að koma leiknum í spennu á um 50. Mínútu. Sigurmark leiksins kom þegar tvær mínútur voru eftir og unnu Melsungen 26-27 sigur. Arnar Freyr skoraði 1 mark í leiknum. Þriðji og seinasti leikur dagsins fór fram í Hannover er Flensburg kem í heimsókn. Flensburg voru kröftugir í fyrri hálfleik þar sem þeir voru fimm mörkum yfir í halfleik. Í seinni hálfleik komu Hannover sterkir til baka en dugði það ekki og unnu Flensburg þriggja marka sigur 32-35. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var August Pedersen með 11 mörk. Úrslit dagsins: Kiel-Eisenach 30-30 Lemgo-Melsungen 26-27 Hannover-Flensburg 32-35

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.