Elín Rósa Magnúsdóttir (INA FASSBENDER / AFP)
Íslendingaliðið, Blomberg-Lippe náði loks í sitt fyrsta stig í riðlakeppni Evrópudeildarinnar þegar liðið gerði jafntefli gegn danska liðinu, Nyköbing í dag 30-30. Um var að ræða fjórða leik liðanna í riðlakeppninni. Elín Rósa Magnúsdóttir og Díana Dögg Magnúsdóttir skoruðu fjögur mörk hvor og Andrea Jacobsen skoraði eitt mark í leiknum. Staðan var jöfn í hálfleik 16-16 en Nyköbing náði mest fjögurra marka forystu í fyrri hálfleik. Blomberg-Lippe var hinsvegar með undirtökin undir lok leiks og þrjú íslensk mörk komu í röð undir í stöðunni 25-27, 26-28 og 27-29 en þá komu þrjú mörk í röð frá Nyköbing sem komust yfir 30-29 en Nieke Kuhne jafnaði metin þegar skammt var eftir og lokatölur 30-30. Nieke Kuhne var markahæst í liði Blomberg-Lippe í leiknum með níu mörk. Blomberg-Lippe mætir franska liðinu, Chambery Touraine um næstu helgi í fimmtu umferð riðlakeppninnar en franska liðið vann fyrri leik liðanna með einu marki 26-25.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.