Andrea og Sandra talað um að spila saman í 14 ár
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Andrea Jacobsen (KERSTIN JOENSSON / AFP)

Landsliðskonan, Andrea Jacobsen var tilkynnt sem nýr leikmaður ÍBV í Olís-deild kvenna frá og með næsta tímabili í vikunni. Andrea gengur í raðir ÍBV eftir tveggja ára veru hjá Blomberg-Lippe í þýsku úrvalsdeildinni.

Hún verður samtals verið í átta ár erlendis en stefnir nú á heimkomu og hefur samið við ÍBV. Handkastið heyrði í Andreu og spurði hana aðeins út í ástæðuna fyrir því að hún skuli ákveða að koma heim.

,,Þetta var erfið ákvörðun. Ég var á báðum áttum mjög lengi en þegar uppi var staðið þá voru fleiri plúsar en mínusar við að fara heim til Íslands. Mér fannst það rétta ákvörðunin fyrir mig akkúrat núna. Ég er búin að vera í þessum atvinnumannapakka lengi og orðin mett í bili ef það má orða það þannig," sagði Andrea en henni stóð til boða að vera áfram hjá Blomberg og eins sýndu félög bæði í Danmörku og í Þýskalandi henni áhuga.

Kærasti Andreu, Róbert Sigurðarson hefur leikið með ÍBV undanfarin ár ef frá er talinn stuttur tími hans í Noregi.

,,Það var margt sem tikkaði inn þar. Ég er mjög hrifin af markmiðum félagsins og þeir hafa verið að sýna mér áhuga í einhvern tíma. Þetta er einnig tækifæri á að framlengja “atvinnumannalífið” örlítið og blanda saman “venjulegu lífi”. Fékk að æfa með þeim aðeins þegar ég var í fríi eftir HM og að koma mér aftur í gang eftir ökklameiðslin. Þá sá ég hvað stelpurnar voru öflugar og mikill metnaður í gangi. Ég átti líka góð spjöll við Magga Stef og leist vel á hann. Ég er búin að eyða miklum tíma þarna með kallinum þegar ég er í fríi og smábæjarlífið og samfélagið í Eyjum heillar mig mikið. Síðan höfum við Sandra talað um það að spila einhverntímann saman síðan við vorum svona 14 ára," sagði Andrea sem er fædd árið 1998 og er því jafn gömul og Sandra Erlingsdóttir sem gekk í raðir ÍBV fyrir tímabilið eftir veru erlendis.

Á sínu áttunda tímabili erlendis, hvernig hefur sá tími verið?

,,Þetta er búið að vera draumur. Maður er búinn að prófa allt finnst mér og lenda í allskonar áskorunum, hæðum og lægðum og það hefur mótað mig að þeim leikmanni og manneskju sem ég er í dag. Þetta er algjör klisja ég veit, en myndi ekki breyta neinu," sagði Andrea sem segir að fyrsta árið sitt í Þýskalandi klárlega það minnistæðasta á ferlinum.

,Þar komumst við í Final 4 í Evrópudeildinni og unnum silfur í úrslitakeppninni í þýsku úrvalsdeildinni og silfur bikarkeppninni. Það var, og er, mikill heiður að vera hluti af þessu liði akkúrat núna. Við erum litla liðið einhverstaðar út í sveit í miðju Þýskalandi sem er að ná þessum frábæra árangri."

Andrea segist vera opin fyrir því að fara aftur út síðar á ferlinum. Hún viðurkennir að hún sé þó ekkert að verða yngri með árunum og því verði það bara að koma í ljós.

,,Það verður klárlega breyting, en mér líst vel á það samt sem áður. Ég hef held ég bara spilað eitt tímabil í Olís-deildinni áður en ég fór út, þannig ég veit ekki alveg við hverju má búast en er spennt fyrir þessu," sagði Andrea sem vonast til að geta hvatt Blomberg-Lippe með gullmedalíu.

,,Það er markmiðið hjá okkur. Það væri fullkominn endir á útlandaævintýrinu að enda þetta með titli eða titlum og við eigum klárlega séns í það," sagði Andrea að lokum í samtali við Handkastið.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top