Góður sigur FH fyrir norðan
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Oddur Gretarsson (Egill Bjarni Friðjónsson)

Þór fengu FH í heimsókn til sín í dag fyrir norðan í 17.umferð Olís deildar karla.

Það mátti ekki sjá að liðin væru á sitthvorum enda töflunnar í dag en liðin voru jöfn nánast allan fyrri hálfleikinn og var Nikola Radovanovic stór ástæða fyrir því en hann var frábær í marki Þórs.

Staðan í hálfleik var 12-13 gestunum frá Hafnarfirði í vil.

Það sama var uppi á teningnum í seinni hálfleik þar sem liðin skiptust á að hafa forystu og var staðan jöfn 19-19 þegar 12 mínútur voru eftir af leiknum.

Þá sýndu FH styrk sinn og náðu fjögurra marka forskoti 20-24. Þeir héldu því forskoti út leikinn og unnu að lokum fimm marka sigur, 21-26.

Þórður Tandri Ágústsson var markahæstur hjá Þór með 4 mörk en hjá FH var Garðar Ingi Sindrason frábær með 10 mörk.

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top