Ágúst Ingi missir af næstu leikjum Aftureldingar
Egill Bjarni Friðjónsson)

Ágúst Ingi Óskarsson leikmaður Aftureldingar verður frá keppni næstu vikurnar í það minnsta vegna nárameiðsla sem hann hlaut í leik með Aftureldingu gegn FH í Powerade-bikarnum fyrir jól.

Ágúst Ingi hefur ekkert æft með Aftureldingu í janúar og var ekki í leikmannahópnum í fjögurra marka tapi liðsins gegn Fram á fimmtudagskvöldið í 16.umferð Olís-deildar karla.

Ágúst Ingi sagði í samtali við Handkastið að hann vonaðist eftir því að geta fengið meðhöndlun á meiðslum sínum hjá læknum á næstunni sem myndu vonandi hjálpa til við að ná bata. Hann gerir hinsvegar ráð fyrir því að missa af næstu tveimur leikjum Aftureldingar í Olís-deildinni.

Afturelding fær Val í heimsókn í Mosfellsbæinn í dag klukkan 15:30 í 17.umferð Olís-deildar karla og fer síðan til Vestmannaeyja á fimmtudaginn í næstu viku.

Ágúst Ingi gekk í raðir Aftureldingar í sumar eftir veru sína hjá Gróttu síðustu tímabil.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top