AftureldingAfturelding Harri Halldórsson ((Raggi Óla)
Afturelding fékk Valsmenn í heimsókn í Mosfellsbæinn í 17.umferð Olís deildar karla. Það er óhætt að segja að Valsmenn hafi leikið á alls oddi í fyrri hálfleik og voru með 95% skotnýtingu í fyrri hálfleik en markverðir Aftureldingar vörðu ekkert skot í fyrri hálfleik meðan Björgvin Páll varði 4 skot í marki Valsmanna. Staðan í hálfleik var 12-18 Valsmönnum í vil. Gestirnir héldu uppteknum hætti í síðari hálfleik og náðu mest níu marka forskoti. Einar Baldvin náði sér aðeins á strik eftir erfiðan fyrri hálfleik og varði 6 skot í síðari hálfleik en það hafði lítið að segja í átta marka sigri Vals, 27-35. Harri Halldórsson var markahæstur hjá Aftureldingu með 7 mörk en hjá Val fór Arnór Snær Óskarsson á kostum og skoraði 13 mörk úr 13 skotum, þar af 8 úr vítum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.