Viktor Gísli bikarmeistari með Barcelona
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Viktor Gísli Hallgrímsson (Javier Borrego / Spain DPPI / AFP)

Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar í Barcelona urðu í dag bikarmeistarar á Spáni eftir sigur á Atlético Valladolid, 24-32.

Barcelona leiddu í hálfleik 12-16 og var sigurinn aldrei í hættu hjá þeim en Barcelona léku án fyrirliða síns Dika Mem sem varð fyrir meiðslum í undanúrslitaleiknum í gær.

Barcelona tryggði sér sæti í úrslitum í gær með 37-31 sigri á Bidasoa Irun í gær.

Viktor Gísli var frábær í leiknum í dag og varði 17 skot eða 41% markvörslu.

Luis Diogo Da Souse Farde var markahæstur Barcelona í dag með 8 mörk en Domen Makuc var næstur með 5 mörk.

Hjá Atlético Valladolid voru Jorge Serrano Villalobos og Jose Guilherme De Toledo markahæstir með 4 mörk.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top