Darri Aronsson (Haukar topphandbolti)
Eftir kærkomna endurkomu á völlinn aftur eftir meiðsli undanfarin ár hefur Darri Aronsson leikmaður Hauka ekki getað leikið með liðinu frá því í október í Olís-deild karla. Darri meiddist á æfingu hjá Haukum í aðdraganda leiks Hauka gegn FH í lok október. Þar meiddist hann á liðþófa eftir að hafa fengið högg frá samherja á æfingunni. Í fyrstu var ákveðið að hvíla Darra frá æfingum og leikjum og vonast til að það myndi duga. Það gerði það hinsvegar ekki og gekkst Darri undir smávægilega aðgerð á hné í byrjun janúar. Darri sagði í samtali við Handkastið að endurhæfingin gengi vel. Hann vonast til að snúa aftur á völlinn í lok febrúar og sagði að það yrði frábært ef hann myndi ná að taka þátt í Final 4 bikarúrslitahelginni sem fer fram, lokahelgina í febrúar. ,,Eins og staðan er í dag þá er möguleiki að ég geti tekið þátt þá, en það er hinsvegar ennþá nægur tími og við verðum að bíða og sjá," sagði Darri í samtali við Handkastið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.