Noah Beyer (Jürgen Fromme / AFP)
Við greindum frá því í gær að danski hornamaðurinn, Casper U. Mortensen myndi yfirgefa HSV Hamburg næsta sumar og flytja heim til Danmerkur af fjölskyldu ástæðum. Hamburg hefur þegar fundið arftaka fyrir Casper U. Mortensen. Þetta herma heimildir Sport Bild. Það liggur fyrir að Mortensen snýr heim til Danmerkur eftir fimm og hálft ár hjá félaginu. Samningur hans verður ekki framlengdur og hefur leikmaðurinn sjálfur sagt að ákvörðunin sé fyrst og fremst tekin af fjölskylduástæðum. „Á meðan á þessari dvöl erlendis stóð fæddist sonur okkar, Carlo, og nú er rétti tíminn til að flytja nær fjölskyldunni í Danmörku,“ hefur Mortensen sagt um ákvörðunina. Forráðamenn Hamburg hafa hins vegar ekki setið auðum höndum. Samkvæmt fréttum hefur félagið þegar fyllt skarðið á vinstri vængnum. Þýski hornamaðurinn Noah Beyer gengur til liðs við félagið frá Bergischer HC. Þjálfari Bergischer er Arnór Þór Gunnarsson. Beyer, sem er 28 ára, hefur verið einn af lykilmönnum Bergischer HC undanfarin ár. Á yfirstandandi tímabili hefur hann skorað 111 mörk í 20 leikjum með 77 prósenta skotnýtingu. Á síðasta tímabili í þýsku B-deildinni skoraði hann 176 mörk og var með yfir 80% skotnýtingu og átti stóran þátt í að liðið tryggði sér sæti á ný í efstu deild. Beyer skoraði meðal annars níu mörk úr tíu skotum í síðasta leik Bergischer gegn Melsungen. Beyer hefur ákveðið að framlengja ekki samning sinn við Bergischer HC og þakkaði félaginu fyrir tímann á heimasíðu þess. „Ég er afar þakklátur fyrir árin mín hjá Bergischer HC. Við höfum gengið í gegnum bæði hæðir og lægðir og ég hef þroskast sem leikmaður. En í sumar bíður mín ný áskorun. Þangað til mun ég gefa allt fyrir félagið og þakka öllum, sérstaklega stuðningsmönnunum, fyrir frábæran tíma,“ sagði Beyer.Þakklátur en tilbúinn í nýtt skref

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.