Antoine Pantano Grótta (Eyjólfur Garðarsson)
Samkvæmt heimildum Handkastsins verður miðjumaðurinn, Antoine Óskar Pantano leikmaður Gróttu leikmaður FH í Olís-deild karla á næstu leiktíð. Herma heimildir Handkastsins að Antoine sé nú þegar búinn að skrifa undir samning við FH en hvorugt liðið hefur þó tilkynnt tíðindin. Er Antoine ætlað að fylla skarð Garðars Inga Sindrasonar sem gengur í raðir Gummersbach næsta sumar. Antoine Óskar er ungur og efnilegur leikmaður sem er uppalinn í KR og svo í Gróttu og hefur leikið stórt hlutverk í meistaraflokki Gróttu undanfarin tímabil. Antoine sem er af frönskum ættum hefur leikið með yngri landsliðum Íslands en hann er fæddur árið 2006. Antoine hefur farið mikið í markaskorun hjá Gróttu í Grill66-deildinni í vetur og er þriðji markahæsti leikmaður liðsins þegar lítið er eftir af tímabilinu. Grótta og Víkingur eru í harðri baráttu um 1.sætið í Grill66-deildinni sem veitir þátttöku í Olís-deildinni á næstu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.