Fram ((Kristinn Steinn Traustason)
Í dag mættust Fram 2 og Haukar 2 í Úlfarsárdal í Grill 66 deild karla.
Í fyrri hálfleik var þetta stál í stál og leikurinn gríðarlega jafn. Það var nánast jafnt á öllum tölum. 1 mark til eða frá eða þá jafnt. Staðan í hálfleik var 16-15 fyrir Fram.
Í seinni hálfleik var það nákvæmnlega sama upp á teningunum. Ótrúlegt jafnræði. Alltaf var leikurinn hnífjafn. Í stöðunni 27-27 og 15 sekúndur eftir tóku Haukar leikhlé. Fór það svo að Bóas Karlsson skoraði sigurmark leiksins í blálokin og tryggði Haukunum ótrúlegan 28-27 sigur.
Hjá Fram 2 var Garpur Druzin með 15 bolta varða. Max Emil Stenlund setti 8 mörk.
Hjá Haukum 2 voru þrír leikmenn með 6 mörk. Ari Dignus varði 8 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.