Guðmundur Bragi Ástþórsson (Eyjólfur Garðarsson)
Ringsted er komið í úrslit í dönsku bikarkeppninni karla í handbolta eftir 35:32-sigur á Sönderjyske í dag en liðið er komið í úrslitaleik dönsku bikarkeppnarinnar í fyrsta skipti. Ringsted var sex mörkum undir í hálfleik en náði að snúa leiknum við ótrúlegum síðari hálfleik og vann að lokum með þriggja marka sigur. Guðmundur Bragi Ástþórsson skoraði þrjú mörk og gaf þrjár stoðsendingar og Ísak Gústafsson, sem á 23 ára afmæli í dag, gaf eina stoðsendingu. Í hinum undan úrslitaleiknum mættust Aalborg og GOG. Álaborg leiddi allan leikinn og landaði liðið að lokum sex marka sigri 35-29. J Ringsted og Álaborg mætast í úrslitaleik dönsku bikarkeppnarinnar og fer leikurinn fram á Jyske Bank Boxen í Herning.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.