Gunnar Róbertsson (Sævar Jónasson)
Valur og KA mættust í N1 höllinni á Hlíðarenda í leik sem var að klárast í Olís deild karla. Valur var með yfirhöndina allan leikinn í dag og voru yfir í hálfleik 17-13. Valur kom inn í síðaeri hálfleikinn og missti aldrei forystuna niður og landaði liðið að lokum fimm marka sigri 36-31 og er Valur komið á toppinn á nýjan leik. Atkvæðamestir í liði Vals voru Gunnar Róbertsson með tíu mörk. Arnór Snær Óskarsson skoraði sjö og Bjarni I Selvindi sex og aðrir skoruðu minna. Atkvæðamestir í liði KA voru Jens Bragi Bergþórsson en hann skoraði sjö mörk. Arnór Ísak Haddsson, Einar Rafn Eiðsson og Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoruðu allir fjögur og aðrir minna.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.