Ívar Bessi Viðarsson (Sævar Jónasson)
Ásgeir Jónsson var getur í Handkastinu í síðustu viku þar sem hann sagðist eiga sér eina ósk. Hann vill að Ívar Bessi Viðarsson, ÍBV leikmaður ÍBV og yngri bróðir Elliða Snæs Viðarssonar leikmanns Gummersbach og Arnórs Viðarssonar leikmanns Karlskrona færi sig um stöðu sóknarlega. ,,Ég vil fá Ívar Bessa í vinstra hornið. Ég er ekki einu sinni að grínast, lína eða horn. Hugsið ykkur ef hann yrði góður hornamaður hversu mikilvæg eign hann yrði fyrir íslenskan handbolta. Hann þarf ekki að vera frábær að klára færin sín, þá ég á við að hann þarf ekki að vera með svakalega tækni. Með þessar löngu hendur og gæti spilað bakvörð varnarlega og í miðblokkinni," sagði Ásgeir. ,,Þetta er bara pæling, því við vitum allir miðað við holninguna á þeim bræðrum þá hefðu þeir báðir átt að vera markmenn og þá værum við ekki að ræða um markmannsstöðu íslenska landsliðsins," sagði Ásgeir og á þá við, Ívar Bessa og Elliða Snæ. Ívar Bessi lék í yngri flokkum sem skytta hjá ÍBV en hans aðal hlutverk í ÍBV liðinu undanfarin ár hefur verið varnarlega, bæði fyrir framan í 5-1 vörn og í bakverði og miðblokkinni. Það verður áhugavert að sjá hvort við fáum að sjá Ívar Bessa í vinstra horninu hjá ÍBV áður en um langt líður en ÍBV fékk til sín Hákon Daða Styrmisson á dögunum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.