Átta íslensk mörk í fyrsta sigrinum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Andrea Jacobsen - Blomberg Lippe (SVEN SIMON /AFP)

Íslendingaliðið, Blomberg-Lippe vann sinn fyrsta leik í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í gærkvöldi þegar liðið mætti Chambray Touraine í Frakklandi. Blomberg-Lippe vann fjögurra marka sigur 31-27 en þýska liðið var fimm mörkum yfir í hálfleik 17-12.

Elín Rósa Magnúsdóttir var markahæst íslensku leikmannanna með fjögur mörk og gaf fjórar stoðsendingar. Andrea Jacobsen skoraði þrjú mörk og gaf þrjár stoðsendingar en Andrea kemur heim í Olís-deildina á næstu leiktíð og leikur með ÍBV.

Þá skoraði Díana Dögg Magnúsdóttir eitt mark og gaf tvær stoðsendingar.

Þrátt fyrir sigurinn er ljóst að Blomberg-Lippe kemst ekki uppúr riðlinum en liðið er í 3. sæti með þrjú stig, þremur stigum á eftir Nyköbing og Esztergom þegar ein umferð er eftir en Nyköbing og Esztergom mætast í dag í 5.umferð riðilsins.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top