Hafdís Renötudóttir (Ina FASSBENDER / AFP)
Arnar Pétursson þjálfari íslenska kvennalandsliðsins og Óskar Bjarni Óskarsson aðstoðarmaður hans hafa valið 18 manna leikmannahóp landsliðsins sem tekur þátt í tveimur leikjum gegn Svartfjallalandi í undankeppni Evrópumótsins sem fram fer síðar á árinu. Ísland mætir Svartfjallalandi á Ásvöllum miðvikudaginn 4.mars og síðan aftur ytra sunnudaginn 8.mars. Athygli vekur að bæði Thea Imani Sturludóttir og Elísa Elíasdóttir leikmenn Vals eru í hópnum en þær hafa verið fjarri góðu gamni í liði Vals að undanförnu vegna meiðsla. Sara Dögg Hjaltadóttir leikmaður ÍR er í hópnum en hún var ekki í 35 manna lista Íslands fyrir heimsmeistaramótið sem fram fór fyrir áramót og var sú ákvörðun harðlega gagnrýnd. Ísland er á botni riðilsins í undankeppninni fyrir EM án stiga eftir tvo leiki en Svartfjallaland er með fjögur stig. Portúgal og Færeyjar eru jöfn í 2. og 3. sæti riðilsins með tvö stig en þær þjóðir mætast tvívegis innbyrðis í þessum landsliðsglugga. Markverðir Hafdís Renötudóttir, Valur (77/5) Sara Sif Helgadóttir, Haukar (21/0) Aðrir leikmenn Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín, Fram (16/11) Andrea Jacobsen, Blomberg-Lippe (66/116) Dana Björg Guðmundsdóttir, Volda (19/44) Díana Dögg Magnúsdóttir, Blomberg-Lippe (72/97) Elín Klara Þorkelsdóttir, Sävehof (33/119) Elín Rósa Magnúsdóttir, Blomberg-Lippe (38/78) Elísa Elíasdóttir, Valur (29/26) Katrín Anna Ásmundsdóttir, Fram (20/27) Katrín Tinna Jensdóttir, ÍR (34/35) Lovísa Thompson, Valur (37/70) Matthildur Lilja Jónsdóttir, ÍR (7/1) Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Haukar (10/6) Sandra Erlingsdóttir, ÍBV (45/185) Sara Dögg Hjaltadóttir, ÍR (3/12) Thea Imani Sturludóttir, Valur (98/224) Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Valur (54/88)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.