Meistaradeildin: Ómar Ingi markahæstur og önnur úrslit kvöldsins
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ómar Ingi Magnússon SC Magdeburg ((MARIUS BECKER / dpa Picture-Alliance via AFP)

Fjórir leikir fóru fram í kvöld í Meistaradeild Evrópu í kvöld og áttum við x Íslendinga í eldlínunni í kvöld.

Janus Daði Smárason og liðsfélagar hans í Pick Szeged máttu þola 27-35 tap fyrir Barca á heimavelli. Það vakti athygli að Janus Daði var ekki í leikmannahópi Pick Szeged en Viktor Gísli Hallgrímsson spilaði lítið og tókst ekki að verja eina skotið sem hann fékk á sig.

Íslendingalið Kolstad töpuðu illa í heimsókn þeirra til Álaborgar 36-24. Sigvaldi Björn Guðjónsson átti þó góðan leik og skoraði 6 mörk og Sigurjón Guðmundsson markvörður tók þátt í leiknum með Kolstad en fékk ekki að spreyta sig. Þá var Benedikt Gunnar Óskarsson ekki með Kolstad í kvöld.

Þá fengu Magdeburg GOG í heimsókn og unnu 7 marka sigur 37-30. Ómar Ingi Magnússon var markahæstur hjá Magdeburg með 6 mörk og Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði 2.

Í síðasta leik kvöldsins fór PSG illa með HC Zagreb 24-35 þar sem Kamil Syprzak og Yahia Khaled Fathy Omar fóru fyrir Parísarliðinu og skoruðu 7 mörk hvor.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top