Gøran Johannessen (SOEREN STACHE / dpa Picture-Alliance via AFP)
Norðmaðurinn, Gøran Johannessen sneri til baka á handboltavöllinn á dögunum eftir nærri tveggja ára fjarveru vegna erfiðra meiðsla síendurtekinna fylgikvilla. Gøran Johannessen var loksins mættur aftur á handboltavöllinn með Kolstad í norsku úrvalsdeildinni um síðustu helgi. Árið 2024 slitnaði hásin á æfingu rétt fyrir forkeppni Ólympíuleikanna hjá leikmanninum og þegar hún var nánast í lagi, gerðist það aftur. Síðan komu sýkingar, bakslag og óvissa um framtíð Norðmannsins. „Það var tímabil þar sem ég hugsaði að ferillinn væri búinn,“ sagði Gøran sjálfur, en hann lét það ekki stoppa sig. Hann segir að í endurhæfingunni hafi hann byrjað á því að labba, síðar að hlaupa og loks hoppa og skjóta. ,,Þegar það var í höfn fór ég prófa mig áfram í handbolta. Öll endurhæfingin hefur verið frekar súrrealískt, frá því það hófst og til dagsins í dag, með fjórum bakslögum. Þetta hefur verið ótrúlega erfitt. Ég er ótrúlega stoltur af vinnunni sem ég hef lagt andlega og líkamlega í þetta." Lokaniðurstaðan? Eitt mark í fyrsta alvöru leiknum eftir rúmlega tveggja ára fjarveru og nú bíður hans vonandi bjartari tímar þar sem hann getur hjálpað Kolstad í þeirri erfiðu stöðu sem liðið er komið í. Norðmaðurinn verður 32 ára í apríl en hann gekk í raðir Kolstad sumarið 2023. Áður lék hann með Flensburg í Þýskalandi og GOG í Danmörku en ferilinn hófst með Viking í Noregi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.