Sumstaðar blasir við hrun ef eitthvað er að marka fréttir og sögusagnir
{{brizy_dc_image_alt entityId=

HK (Egill Bjarni Friðjónsson)

Boltablogg. á Facebook sem er í höndum handboltaþjálfarans gamal reynda, Ragnars Hermannssonar skrifar í gærkvöldi á síðu sinni athyglisverða grein um stöðu nokkurra liða í Olís-deild karla.

Þar segir að hans mati sé staða nokkurra liða í Olís-deild karla slæm. Þar á hann líklega við stöðu HK og Stjörnunnar sem eru í harðri baráttu um síðasta lausa sætið í 8-liða úrslitunum en Stjarnan sem hefur tapað átta leikjum í röð í Olís-deild karla er einnig í mikilli fallbaráttu en liðið er einungis stigi frá umspils sætinu.

Ragnar starfaði lengi vel hjá Stjörnunni og var síðast styrktarþjálfari hjá liðinu fyrir tveimur árum síðan. Hann þekkir því vel til í Garðabænum og stjórnunarhættina þar og þær ákvarðanir sem teknar hafa verið í Garðabænum síðustu ár.

Í Kórnum hafa fjórir leikmenn verið orðaðir frá félaginu hér á Handkastinu síðustu daga meðal annars til Hauka, Fram og Vals.

Facebook póstur Boltablogg. má sjá hér að neðan:

,,Staða nokkurra liða í Olís deild karla er slæm. Þá á eg ekki einungis við stigatöfluna heldur ekki síður áruna í kringum liðin. Sumstaðar blasir við hrun ef eitthvað er að marka fréttir og sögusagnir. Því miður er oftar en ekki tjaldað til einnar nætur með óraunhæfar væntingar og tækifærismennsku að leiðarljósi. Á endanum hrynur spilaborgin og bestu leikmenn liðanna fara í Val, Hauka eða FH. Þetta er ömurlegt og virðist snúast um stjórnleysi og lélegt innra starf en mest þó stefnuleysi. Ég hef margoft bent á nauðsyn uppeldisbóta, fækkun leikmanna á skýrslu og betra yngri flokka starf til að koma í veg fyrir þessa þróun. Ef ekkert verður að gert breytist ekkert."

Stjarnan tapaði áttunda leik sínum í röð í Olís-deild karla í gærkvöldi er liðið tapaði gegn lánlausum Mosfellingum en HK heimsækir Íslands- og bikarmeistara Fram í Úlfarsárdalinn klukkan 19:00. HK hefur unnið tvo af síðustu níu leikjum sínum í deildinni en liðið vann nýliða Þórs í síðustu umferð á heimavelli.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top