Þorsteinn Gauti valinn í finnska landsliðið
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Þorsteinn Gauti Hjálmarsson (Egill Bjarni Friðjónsson)

Þorsteinn Gauti Hjálmarsson leikmaður Íslands- og bikarmeistara Fram í Olís-deild karla hefur verið valinn í 16 manna leikmannahóp finnska landsliðsins sem leikur í mars tvo leiki í undankeppni fyrir HM 2027.

Finnland mætir Svartfjallalandi í undankeppni heimsmeistaramótsins en fyrri leikur þjóðanna fer fram í Finnlandi 19. mars og síðari leikurinn 22.mars í Svartfjallalandi.

Sjö af 16 leikmönnum finnska landsliðsins leika í heimalandinu en aðrir leika í Þýskalandi, Danmörku, Austurríki og Svíþjóð en alls leika fjórir finnskir landsliðsmenn í Svíþjóð.

Þorsteinn Gauti verður í eldlínunni með Fram í Olís-deild karla í kvöld þegar HK kemur í heimsókn. Fram og HK eigast við klukkan 19:00 í kvöld. ÍR og Valur mætast klukkan 19:30 í Skógarselinu.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top