Andri Þór Helgason (Sævar Jónasson)
Andri Þór Helgason leikmaður HK, Halldór Kristinn Harðarson og Kári Kristján Kristjánsson leikmenn Þórs áttu það allir sameiginlegt að skora glæsileg mörk í leik HK og Þórs sem fram fór í Kórnum í 18.umferð Olís-deildar karla í síðustu viku. Handboltahöllin sem sýnd er öll mánudagskvöld í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans vakti athygli á mörkunum þremur. HK hafði betur í leiknum og vann lífsnauðsynlegan sigur í fallbaráttunni. Þór er hinsvegar í umspilssætinu, með 9 stig, stigi á eftir Stjörnunni og tveimur stigum á eftir Selfossi. Selfoss og Þór mætast í dag í næst síðasta leik 19.umferðarinnar sem lýkur á morgun með leik KA og ÍBV. Mörkin þrjú er hægt að sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.