Vildi ekkert tjá sig um orðróminn um tvo nýja leikmenn
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Gunnar Magnússon (Sævar Jónasson)

Handkastið greindi frá því á dögunum að tveir leikmenn HK í Olís-deild karla þeir Hjörtur Ingi Halldórsson og Sigurður Jefferson væru samkvæmt heimildum Handkastsins að ganga í raðir Hauka fyrir næstu leiktíð.

Gunnar Magnússon þjálfari Hauka var spurður út í þennan orðróm í viðtali við Handkastið eftir sjö marka tap liðsins gegn FH í 19.umferð Olís-deildar karla á fimmtudagskvöldið.

,,Ég tjái mig ekki um leikmenn annarra liða. Ef einhver skrifar undir þá sendum við út tilkynningu. Með virðingu fyrir öllum þá tala ég ekki um leikmenn hjá öðrum liðum. Þið getið spekúlerað eins og þið viljið en þið verðið að virða það að við berum virðingu fyrir öðrum,” sagði Gunnar þjálfari Hauka.

Hjörtur Ingi og Sigurður verða í eldlínunni með HK í kvöld þegar liðið mætir Íslands- og bikarmeisturum Fram í Úlfarsárdalnum. Fleiri leikmenn HK hafa verið orðaðir frá liðinu meðal annars Haukur Ingi Hauksson sem hefur verið orðaður við Fram og þá hefur Ágúst Guðmundsson einnig verið orðaður frá liðinu í sumar.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top