Ágúst Birgisson (Kristinn Steinn Traustason)
Ágúst Birgisson var ekki í leikmannahópi FH í sigri liðsins gegn Haukum í Hafnarfjarðarslag í 19.umferð Olís-deildar karla í síðustu viku. Sigursteinn Arndal þjálfari FH gaf lítið upp afhverju Ágúst var ekki með í leiknum og gat lítið sagt til um framhaldið hjá honum. Ágúst sat upp í stúku meðan leikurinn fór fram. ,,Það á eftir að koma betur í ljós. Þetta er tiltölulega ný komið og við vitum ekki stöðuna á honum," sagði Sigursteinn Arndal þjálfari FH í viðtali við Handkastið eftir sannfærandi sigur liðsins gegn Haukum í síðustu viku. FH og Haukar mætast í annað sinn á viku þegar liðin mætast í undanúrslitum Powerade-bikarsins á Ásvöllum næstkomandi fimmtudag klukkan 18:00. KA og ÍR mætast í seinni undanúrslitaleiknum klukkan 20:15 sama dag. FH-ingar hafa unnið Hauka í báðum leikjum liðanna á tímabilinu en liðið hafði betur í leiknum á fimmtudaginn nokkuð sannfærandi 25-32. Rætt var um leikinn og hitað upp fyrir undanúrslitaleikina í nýjasta þætti Handkastsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.