Arnar Freyr Arnarsson MT Melsungen - 1. VfL Potsdam (Swen Pförtner / dpa Picture-Alliance via AFP)
Þýska liðið MT Melsungen þar sem íslensku leikmennirnir, Arnar Freyr Arnarsson og Reynir Þór Stefánsson eru meðal leikmanna eiga leik fyrir höndum gegn Vardar 1961 í Skopje í Norður-Makedóníu í kvöld í Evrópudeildinni. Þjálfarateymi Melsungen hefur ákveðið að mæta með mikið breytt lið til leiks í leikinn í kvöld og munu lykilmenn liðsins fá frí í leiknum í kvöld. Gert er ráð fyrir því að átta leikmenn unglingaliðs Melsungen verði í leikmannahóp Melsungen í Skopje í kvöld og fá þar óvænt tækifæri í Evrópudeildinni. Melsungen stendur vel að vígi í riðlakeppninni með sex stig en Vardar, Benfica og Kristianstad eru öll með tvö stig þegar þrjár umferðir eru eftir af riðlakeppninni. Aðstoðarþjálfarinn Finn Lemke útskýrði ákvörðunina en það er Handball-Planet sem greinir frá. „Á þennan hátt getum við prófað leikmenn úr unglingaliðinu okkar og varaliðinu smám saman samþætt þá í aðalliðið," sagði Lemke sem segist treysta liðinu sem leikur í kvöld til að vinna Vardar. Ástæðurnar fyrir ákvörðuninni eru margþættar. Lemke benti á að sumir leikmenn í aðalliðinu séu að glíma við minniháttar meiðsli, en þreyta hefur einnig safnast upp vegna þéttar leikaprógramms í Þýskalandi auk þess sem leikmenn hafa verið að koma til baka eftir Evrópumótið. Margar veðmálasíður erlendis hafa tekið þá ákvörðun að fjarlægja leikinn af síðum sínum og er leikurinn til að mynda ekki í boði hvorki á Coolbet né Betsson.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.